miðvikudagur, júní 14, 2006

13 dagar í heimferð

Ég og Beggi og bumbulíus erum að flytja heim til Íslands eftir 13 daga, úff hvað tíminn líður hratt. Þá erum við búin að búa í Dk í næstum 2 ár. Við erum búin að vera að pakka því helsta og nú förum við að setja allt á fullt að taka húsgögn í sundur og svona því gámurinn fer í næstu viku, þannig að ekki er mikil tími til stefnu.
Mér er farið að hlakka mjög til að koma heim og hitta alla heima og spóka mig með Bumbulíus í bænum :) en ég er ekki frá því að við erum eftir að sakna Koben.

Beggi útskrifaðist á föstudaginn fyrir þá sem ekki vita og fékk hann 13 í lokaeinkunn sem á varla að vera hægt. Hann er náttla snillingur þessi elska. Ég gaf honum þetta flotta Philips heimabío í gjöf sem hann gat ekki beðið með að opna og opnaði hann það strax og er það komið upp í stofunni þrátt fyrir að við séum að pakka öllu niður og fara að flytja. Þannig að í stofunni núna er sófi, sjónvarp og heimabío ;) hehe.

Minni ykkur svo á heimasíðuna hjá Bumbulís
www.bumbulius_bergsveins.barnaland.is

Kveðja Lilja

miðvikudagur, maí 17, 2006

Danir það latasta sem til er

Það vita allir hvað Danir eru latir í að vinna. Þeir nenna ekki að vinna nema 32 tíma vinnu viku eða eitthvað svoleiðis og náttla alls ekki um helgar eða neina yfirvinnu. Á föstudögum er yfirleitt alltaf hætt fyrr í vinnu og ekki má gleyma öllum kaffipásunum og bjórpásunum og fleira sem teknar eru yfir vinnudaginn. En fólk er greynilega ekki bara svona latt í vinnunni heldur bara alltaf.
Í dag fór ég í bæinn og allt í lagi með það nema þegar ég er að fara frá Amagerbro lestastöðinni minni fer ég með lyftunni upp því ég er með hjólið mitt líka. Ég hef alltaf getað farið með það í stigann því þar er svona renna fyrir hjólið til að ýta upp en síðast þegar ég gerði það þá fann ég að það var aðeins of mikill þungi fyrir mig eftir að ég varð ólétt. Ég trillaði með hjólið fram að lyftu og ýtti á takann. Þegar lyftan kom frá neðstu hæðinni var hún full af fólki. Það var ekkert hjól í henni né barnavagn og eins og allir vita að þá eru lyfturnar fyrir fólk sem er í hjólastól, á erfitt með gang, er með barnavagn eða hjól. Lyftan opnaðist beint fyrir framan mig og allir horfðu á mig en engum datt í hug að labba upp síðustu tröppurnar og leyfa mér að koma inn. Ég tek það fram að það sjest nú alveg langar leiðir að ég er ólétt og plús það að ég var með hjól. Þegar ég leit inní lyftuna sá ég bara ungt fólk, fremst voru bara ungar latar stelpur sem nenntu ekki að hreyfa á sér rassgatið og labba upp stigann. Ok, ég ýtti bara aftur á takann og beið eftir næstu. Þegar lyftan kom aftur var hún full af barnavögnum, allt í lagi en síðan kom hún aftur og þá var einn barnavagn og restin var bara fólk. Ég er ekki að grínast en lyftan fór framhjá mér 6 sinnum áður en ég komst inní hana og þegar ég fór inní hana voru 3 stelpur í henni sem nenntu ekki að taka rúllustigan og labba upp. Ef ég hefði verið á Íslandi að þá hefði ég sagt eitthvað við þetta pakk sem var í lyftunni þegar hún opnaðist alltaf hjá mér en ákvað bara að bíta í jaxlinn núna því ekki kann ég að vera reið á dönsku. En guð hvað ég var orðin pirruð en komst upp í ferska loftið fyrir rest :)

föstudagur, maí 12, 2006

Komin í sumarfrí

Í dag kláraði ég síðasta prófið mitt og var það ekkert smá gaman. Prófið gekk reyndar ekki eins og ég hefði óskað en það er enn von þangað til að einkunirnar koma :) Í dag var geggjað veður og ætlaði ég og Guðrún jafnvel að kíkja á rölt í bæinn en í dag er heilagur bænadagur Dana og því allt lokað, meirisegja matvörubúðirnar nema kaupmaðurinn á horninu. Í staðin fórum við í Frederiksberg garðinn sem er ótrulega fallegur garður og settumst þar að í nokkra tíma og sleiktum sólina ;)
Núna þarf ég bara að fara að hugsa um hvað ég ætla að gera á morgun og hin og hin því ekki þarf ég að læra eða gera verkefni eða neitt sem tengist skólanum og ég er bara ekki að fatta það, ohh svo ljúft líf að vera í skóla :)
Nú fer maður að setja í pökkunar gírinn og setja ofaní kassa svo maður sé ekki að þessu fram að síðasta degi, segi líka ekki ef við náum að skreppa til Spánar áður en við förum heim ;) Já það kemur í ljós.

Jæja ætla að hoppa upp í sófa og njóta sumarfrísins :)

laugardagur, maí 06, 2006

Bara aðeins meira sýnishorn :)



miðvikudagur, maí 03, 2006

Það er að rætast úr þessu

Já kæru vinir, ég sem byrjaði á því að tuða um hvað það væri kalt hérna þegar ég kom á sunnudaginn. Það var smá rigning og þegar ég var á leiðinni heim frá vellinum var mér kalt á fingrunum, svo kalt var úti. Á mánudeginum þann 1 maj fórum við með Guðrúnu, Jóa, Örnu og Einari Mána í Fælledparken því þar var rosa hátið og tívolí í gangi. Mjög gaman nema það að áður en ég fór af stað þá fór ég í síðermabol, hettupeysu og stuttu úlpuna mína að ofan, svo kalt var mér. Veðrið skánaði nú þegar leið á daginn og svona upp úr 5 var komið ágætis veður og ég rendi úlpunni niður :) Í gær var rigning og leiðindi en í gærkveldi þegar ég og Beggi löbbuðum í kvikly að þá var komið þetta fína veður. Nú var ég að vakna og kíkja út um gluggann og hvað haldiði, ætli sumarið sé ekki bara komið :)
Ég gat nú ekki annað en sett inná fyrir ykkur nýjustu veðurlýsinguna þannig að þið sjáið hvernig vikan á að vera hérna í Danmörku.
Bíst við að ég læra úti í garði fyrir prófin :)


fimmtudagur, apríl 06, 2006

.........................

Nú er ég byrjuð í vettvangsnáminu mínu og verð að vinna á Bæjarbóli í Garðabæ í 5 vikur, eða nú eru 3 vikur búnar svo ekki er mikið eftir. Þetta er búið að vera alveg æðislega gaman og ég er búin að læra heilan helling. Þetta er mun meiri vinna en ég helt þetta vettvangsnám, það er brjáluð verkefna vinna með þessu og rannsóknir að ég er bara að drukkna hérna heima. Beggi er á fullu auðvitað að skrifa lokaverkefnið sitt með Jóa spóa og það finnst mér bara fínt því ég er búin að vinna kl 2 og þá fer ég beint heim að læra, lærdómurinn myndi nú eitthvað sita á hakanum ef Beggi minn væri bara heima þegar ég kæmi, hmm. Ég verð á landinu til 30 apríl en fér þá heim til DK í sólina og sumarið :) Ég get bara ekki beðið eftir að komast út og það er eins gott að það verði gott veður þegar ég kem því ég er alveg búin að sjá þetta fyrir mér, haha. Síðan byrjar fyrsta prófið mitt 8 mai svo ekki er mikill tími til að læra þegar ég kem heim en ég set bara allt á fullt og ekki væri það verra ef ég gæti nú lært bara úti í garði í sólbaði með bumbuna mína út í loftið :) Já semsagt þeir sem vissu ekki að þá er ég ólétt en er nú viss um að flestir vissu það ;) Sumarið hjá mér verður semsagt æðislegt og eftir prófin mun ég og Guðrún vinkona vera bara að spóka okkur á ströndinni með Einar Mána og bumbulíus, er það ekki Guðrún ;) Ég fer í annað próf þann 8 mai og síðan síðasta 12 mai. Ohh hlakkar bara til.
Við erum búin að gera heimasíðu fyrir bumbulíus fyrir fólkið heima á Íslandi þegar við verðum úti svo það geti nú fylgst vel með okkur. Hún er www.bumbulius_bergsveins.barnaland.is
Það er náttla ekki mikið á henni en það koma myndir og spjall og svona inná hana yfir sumartímann.
Endilega kíkið á litla bumbulíusinn minn ;)

Kveðja Lilja

föstudagur, mars 03, 2006

Auður og Maggi í heimsókn

Síðustu helgi var Auður frænka mín og Maggi kærasti hennar hjá okkur. Það var rosalega gaman að fá þau í heimsókn og var mikið gert á þessum 4 dögum. Það var ekki verslað mikið sem kom mér á óvart því þetta er hún Auður :) en það var þá bara meiri tími til að skoða og gera annað. Við fórum í smá túristaleik með þeim þvi Maggi hefur aldrei komið til Danmerkur og kíktum við í Christianíu því allir sem koma hingað verða að sjá hvernig hún er. Við kíktum upp í hringturnin sem er á Købmagergade og þar getum maður kíkt yfir alla kaupmannahöfn og eitthvað lengra. Síðan kíktum við í kirkjuna sem er þar til hliðar og var rosa gaman að skoða hana. Á laugardagskvöldið fórum við út að borða á Jensens og þar var allt auðvitað mjög gott. Síðan fóru þau í dýragarðinn á sunnudeginum en á meðan löbbuðum ég og Beggi nye og gamle Carlsbergvej. Ég hef aldrei labbað þar og fannst mér þetta rosalega flott allt saman.
Auðvitað var farið í Fields og strikið og fleiri götur skoðaðar og barir tjekkaðir út.
Þetta var frábært helgi í alla staði. Takk fyrir heimsóknina ;)

Jæja þetta var bara svona smá innlegg um þessa helgi.
Lærdómurinn kallar.

Nokkrar myndir þegar Auður og Maggi voru hjá okkur